Víking

   
Brugghús : Víking hf
LAND : Ísland
STÍLL : Lager
ÁFERÐ : Gylltur
ALKÓHÓL : 5.6%
FYRST METINN : 4/9'01 - Brekkuskógur
 

ATHUGASEMDIR:  Ummmmmmm gamli góði Víking, já maður hefur átt margar góðar stundir með þessum kalli.  Þetta er bragðmikill lager með áberandi og ríkt humalbragð en þó ekki of bitur heldur þræðir hinn gullna meðalveg.  Ágætis fylling og langt og ljúft eftirbragð sem einkennist af humli og svo eitthvað annað!  Léttur og frískandi bjór.  Þessi má ALLS ekki vera í dós því það fer alveg með fílinginn.  Íííískaldur úr flöskunni er hann bestur þessi kall!   Já hér er á ferð sá allra besti sem við íslendingar leggjum til í heim bjórsins.  Ef menn vilja íslenskan bjór gerðan úr okkar hreina og fína vatni þá er það þessi.
ATH - Frábær bjór með sukkfæði og brösuðum mat. Gæti passað vel við fisk líka?

 

Einkunn:  Án efa besti bjór landsins!

 

 
 

<< Til baka

Næsti bjór >>