Grön Tuborg

   
Brugghús : Tuborg Bryggerier
LAND : Danmörk
STÍLL : Sígildur lager
ÁFERÐ : Gullinn
ALKÓHÓL : 4.6 %
FYRST SMAKKAÐ : Einhvern tíman í fornöld?
 

ATHUGASEMDIR: Þetta er annar svona ósköp látlaus lager og reyndar ekki eins góður og ætla mætti af vinsældum hans hér á landi að minnsta kosti.  Já menn kaupa þennan grimmt á öldurhúsum borgarinnar og ég bara skil ekki af hverju. Það er til betri lager á krana hérlendis svo sem Viking, Grolsch eða Carlsberg.  En nóg um það, smekkur manna er misjafn, og þetta er gott dæmi um það, þetta er mildur og léttur bjór sem auðvelt er að skola niður.  Maður verður samt að drekka hann ískaldan!!  Gaman væri að fá að heyra hvað þér gestur góður finnst um þennan ágæta bjór?
ATH - þetta er einn af þessum gaurum sem ég hef drukkið oft í gegnum tíðina eins og svo margir aðrir!

 

Einkunn:  Ekkert spes!

Skráðu þitt álit á þessum bjór hér.

Hvað segir almanna rómur um þennan bjór?
 -----------------------------------
Fleiri frá Tuborg
Tuborg Julebryg 1999 - 3
Tuborg Julebryg 2001 - 2.5
Tuborg Strong Beer - 4

Tuborg Paskebryg 2003 - 2.5
Tuborg Gold Label - 3

 
 

<< Til baka

Næsti bjór >>