|
ATHUGASEMDIR:
Hér er nokkuð súr bjór á ferð með mikið þétt bragð og vel
fullur í munn. Góður matarbiti. Alkóhól fjarverandi í
munni. Stuttur í spuna en fínt eftirbragð það sem maður nær.
Frúttfaktorinn er þarna en hið súra sérstaka málmbragð
“maskar” það að mestu. Gosið er fínt og bjórinn minnir pínu
ögn oggo pons á
Rodenbach! Veit ekki en
það gæti verið þetta súra málmbragð sem líklega er viðloðandi
þessi belgísku rauðu öl. Ég er líka að finna eitthvað sem gæti
verið rúsínur eða annars konar þurkaðir ávextir.Sem
sagt ágætur bjór með mjög spes bragði og hentar fínt sem
“huggubjór” eftir góða máltið í góðra vina hópi. Ekkert
sérstaklega “satanic” við þennan bjór nema þá kannski þetta
gífurlega alkóhólmagn sem gjörsamlega fer huldu höfði í
bragði. |