| |
ATHUGASEMDIR: Enn eitt meistaraverkið frá
Belgum, bragðmikill og mjög frískandi og svo þessi fína
fylling. Langt og mikið eftirbragð.
Saison
(árstíðar bjór) er belgískur bjórstíll eða sumar öl sem
ættaður er frá frönsku mælandi suðurhluta Belgíu. Bjór þessi
var venjulega bruggaður á veturna eða vorin og svo geymdur
fram á sumar og drukkinn yfir sumarmánuðina.
Saison bjórar þurftu að vera
frekar humlaðir til að haldast ferskir yfir sumarið en þó ekki
of rammir svo þeir væru svalandi á heitum sumardegi.
Þessir bjórar eru líka þekktir fyrir að vera afar gosmiklir en
gosið safnast fyrir í flöskunni yfir geymslutímann. Oft er svo
ýmsum kryddum eða jurtum bætt við til að lífga bjórinn aðeins
við. Saison Dupont er eitt af flaggskipum þessa stíls.
|
|