Páskabjórinn í ár

Páskabjór Egils er 5% gaur sem kemur í afar fallegum umbúðum og ljómar svo gylltur og fallegur í glasi.  Í nefi má finna mettandi keim sem á vel við lagerinn en þó ekkert sem minnir á páska frekar en í öðrum lager - kannski ekki hægt að ætlast til þess svo sem.  Þetta er annars bara fínn kall og með betri bjórum frá Agli en þó alls ekki eins góður og Þorrabjórinn.  Annar páskabjór frá Agli er svo Egils Malt Páskabjórinn en þar er á ferð bjór sem er nokkuð svipaður Malt Jólabjórnum þeirra að því leiti að þeir eru báðir mjög sætir og nauðalíkir venjulegu Egils Malti.  Ef menn vilja fá sér bjór sem minnir lítið á bjór þá er það þessi um Páskana.  Víking kemur svo með fínan lager þetta árið og hefur meira að segja breytt útliti flöskunnar.  Miðinn er líka afar glæsilegur og töluvert fallegri en sá sem þeir voru með í fyrra sjá hér.  Í ár er bjórinn fallega rauð-koparlitaður og mjög glæsilegur í glasi og virðist vera í anda hinna dökku "Dunkel" bjóra frá Þýskalandi.  Þetta er bragðmikill bjór með góða fyllingu og áberandi malt.  Kaffi og létt ristaður fílingur er einnig til staðar en karamella og súkkulaði lætur lítið bæra á sér en það er þarna samkvæmt miðanum. Þetta er bragðmikill og góður bjór og ég held að þessi sómi sér best á veisluborði landsmanna í ár. Sem sagt 3.5 krúsir á Páksabjór Víkings takk fyrir.  Að lokum er það svo Daninn með sinn kylle kylle.  Þetta er bara eins og annar Tuborg - ekkert spes en dugar þó og fær 2.5 krúsir.