Old Speckled Hen

   
Brugghús : Greene King/Morland Brewery
LAND : England
STÍLL : Sterkt öll
ÁFERÐ : Kopar rauður
ALKÓHÓL : 5.2%
FYRST SMAKKAÐ : 23/11'01 - Reykjavík
 

ATHUGASEMDIR:  Þetta er enskt öl sem reyndar er ekkert í neinu sérstöku uppáhaldi já mér.  Bjór þessi er rauðleitur og með litla froðu og maður er ekki að búast við neinni spes upplifun.  Bragðlaukarnir taka hins vegar andköf þegar sopið er á bjórnum því bragðið er mikið og öflugt, mikið malt sem fjarar út í kaffi og ristað brauð (með osti - nei nei segi svona).  Góð fylling og slatti langt eftirbragð, hmmm var ég búinn að segja malt? : )  Ekkert of sætur samt og ekki þessi mikli ölsveppa fílingur.

ATH - Einn einn bjórinn frá RETRO. Ætli maður verði ekki bara að útnefna RETRO velunnara nr 1.

 

Einkunn:  Fínn maltbjór!

 

 
 

<< Til baka

Næsti bjór >>