| |
ATHUGASEMDIR: Hér er kominn bróðir
Modelo Especial
sem mér til mikillar ógleiði er ekki lengur til hér á landi.
Negra Modelo er eins og nafnið bendir til dökkur bjór, nánar
tiltekið lager eins og hann kom fyrst fram á sjónarsviðið.
Þetta er efnismikill bjór, gosríkur og mildur og "dökka
bragðið" eins og sumir kalla það er alls ekki mikið.
Ekki láta litinn fæla ykkur frá þið þarna lager fólk þarna
úti. Humlar láta hér í minni pokann fyrir sætu maltinu
en draga þó úr væmninni. Sæmó fylling og ágætt
eftirbragð. Þó um dökkan bjór sé hér að ræða þá er þetta
afar léttur kall eins og frændur hans eru að venju frá mexikó
(Sol ofl) og það má því þamba hann. Gæti komið ágætlega
út við grillið á sumrin þegar mikil sól er úti. |
|