Manacas

   
Brugghús : ?
LAND : Kúba
STÍLL : Lager
ÁFERÐ : Gulur og þunnur
ALKÓHÓL : 4.8%
FYRST SMAKKAÐ : 1/9'01 - Brekkuskógur
 

ATHUGASEMDIR:  Þessi gaur, sem kemur í afar ósmekklegum umbúðum frá Kúbu, er eins og "hlandararnir" Sol, Miller, Corona og aðrir álíka, þunnir og fyrirferðalitlir.  Flaskan er líka eins, svona glær appelsínflaska.  Þetta er svona hálfgerður vesalingur eða veggjalús, lítil sem engin lykt en örlar samt á humlum og ávaxtakeim, engin fylling og lítið eftirbragð.  Nokkuð svalandi bjór svo sem og þetta er ölrítið meiri bjór en ofantaldir frændur hans.  Hvernig ætli þessi sé með einn feitan Havanavindil við hönd?

ATH - Þetta var einn af bjórum "Bjórsmökkunarkvölds amatöranna" í Brekkuskógi helgina 1 - 4 sept 2001.

 

Einkunn:  Svalandi og í lagi!

 

 
 

<< Til baka

Næsti bjór >>