|
ATHUGASEMDIR: Leffe Triple er klausturbjór úr
smiðju Interbrew bruggsamsteypunnar og
er keimlíkur hinum gullna
Leffe Blonde.
Tripelinn er þó mun bragðsterkari og vínlegri og er fínt
verkefni fyrir flest skilningarvitin.
Snarpir humlar og spriklandi gosið lífga upp
á bjórinn og mikið ávaxtabragð er einnig áberandi.
Alkóhólið kemur líka við sögu í formi þægilegs hita.
Eins og hinir Leffe kallarnir þá er
þetta fallegur bjór sem gott er að hugga sig y fir
t.d. í sumarbústaðnum við arineldinn á köldu vetrarkvöldi.
Ef ég á þó að bera þessa kalla saman þá verð ég að segja að
Leffe Blonde
er bara betri bjór. Þetta er þó gott klaustur öl og mæli
ég með að menn prófi þetta ef færði gefst. |