Leffe Radieuse

   
Brugghús : St. Guibert (Interbrew)
LAND : Belgía
STÍLL : Klausturbjór (Abbey)
ÁFERÐ : Dökk koparrauður
ALKÓHÓL : 8.2 %
FYRST SMAKKAÐ : 1/8'02 - Reykjavík
 

ATHUGASEMDIR: Radieuse þýðir geislabaugur og á það líklega að vera vísbending á að hér er um að ræða heilagan bjór frá sjálfum skaparanum.  Þennan kall þarf ég að smakka aftur betur seinna en ég er hræddur um að ég hafi ekki fengið allt út úr honum sem skildi.  Þetta er fallegur bjór með dökkan koparblæ og þykka þétta froðu.  Í nefi má finna mikla ávexti og jafnvel kirsuber.  Í munni er bjórinn gosmikill og fyrirferðamikill með öflugt bragð og er þessi sá bragðmesti af þeim Leffe-bræðrum.  Ávextir, ber, humlar og ger.  Fínt langt eftirbragð með ljúfum þægilegum humlum.  Góður kósíbjór!!!

 

Einkunn:  Bragðmikið öl!

Skráðu þitt álit á þessum bjór hér.

Hvað segir almanna rómur um þennan bjór?
----------------------------------
Fleiri frá St_Guibert:
Leffe Blonde - 5
Leffe Bruin - 5
Leffe Triple 8 - 4

 
 

<< Til baka

Næsti bjór >>