Hobgoblin
extra strong ale

   
Brugghús : Wychwood Brewery
LAND : England
STÍLL : Enskur sterköl
ÁFERÐ : Rauðbrúnn
ALKÓHÓL : 5.5%
FYRST SMAKKAÐ : 4/9'01 - Brekkuskógur
 

ATHUGASEMDIR:  Það fyrsta sem ég vil benda á við þennan enska öl eru umbúðirnar.  Flaskan er hrein snilld, glær með upphleyptum krúsídúllum þar sem brúnn mjöðurinn fær að njóta sín vel.  Svo er það miðinn sem er algjört listaverk, takið eftir öllum smáatriðunum í bakgrunni. Allir bjórar frá þessu brugghúsi (dæmi hér til hliðar) bera þessi frábæru listaverk og ég mæli með því menn skoði þau nánar hér http://www.wychwood.co.uk/labels_etc.htm. En nóg um það, umbúðir eru óaðfinnanlegar en bjórinn sjálfur eru vonbrigði.  Ríkuleg lykt með ferska humla og áberandi brennt malt, rétt aðeins örlar á súkkulaði. Mikið og öflugt bragð, nettir humlar og töluvert malt og svo kaffi í restina.  Fín fylling og langt eftirbragð.  Frekar þungur bjór.  Þetta er flaggskip Wychwood brugghússins!

 

Einkunn:  Mjög spes, ekta ale!

 

 
 

<< Til baka

Næsti bjór >>