|
ATHUGASEMDIR:
Hér
er nú einn gamall og traustur jammfélagi á ferð. Þetta
er ferskur og matgóður lager með fína fyllingu. Hæfilega
beiskur og gott eftirbragð. Fínn jammari en virkar líka
andskoti vel með sukkfæði hvers konar. T.d. er pizza með
peppara og gráðosti og svo Grolsch eins og nýgift hjón!
Fæst í tveimur stærðum hér á landi og mér líkar sérstaklega
vel við þann stóra því honum er hægt að loka ef menn telja sig
ekki geta klárað bjórinn.
Er alltaf til í að grípa þennan með!
|