ENDURMAT!
Erdinger Weissbier

   
Brugghús : Erdinger Weissbrau
LAND : Þýskaland
STÍLL : Hveitibjór
ÁFERÐ : Ljós og gruggugur (hvítur)
ALKÓHÓL : 5.3%
FYRST SMAKKAÐ : 22/8'02 - Reykjavík
 

ATHUGASEMDIR:  Ég hlít að hafa verið á 10. bjór þegar ég gaf þessum dóm fyrst?  Það sem ég upplifi nú er nánast þveröfugt við þá upplifun?  Til að byrja með er það lyktin en hún er frekar tælandi verð ég að segja og vel merkjanleg.  Í munni er þetta afar mildur og léttur bjór og mjög svalandi.  Gæti trúað að auðvelt sé að þamba marga af þessum gaur á einu bretti.  Bragðið er frekar fábrotið samt og fylling í meðallagi. Ljúft humlað eftirbragð sem varir ekkert allt of lengi. Já það er duló hve dómur minn er allt örðu vísi núna...ætli þetta sé allt annar bjór?  En svona er þetta...pjúra tunguþroski! Það er heilmikil kúnst að hella svona skratta svo vel sé, á síðu þeirra Erdinger manna eru að finna nákvæmar leiðbeiningar : )

 

Einkunn:  Svalandi og fínn!

Fleiri frá sama brugghúsi :
Erdinger Weissbier Dunkel
Erdinger Champ

Skráðu þitt álit á þessum bjór hér.

Hvað segir almanna rómur um þennan bjór?

 
 

<< Til baka

Næsti bjór >>