| |
ATHUGASEMDIR: Erdinger er vel þekkt þýskt
brugghús sem gerir aðallega út á
klassíska
þýska hveitibjóra.
Glösin fyrir þennan bjór eru alveg gullfalleg, há og tignarleg
og koma manni í rétta fílinginn. Ég varð þó aðeins fyrir
vonbrigðum með þennan þegar ég smakkaði hann fyrst því maður
hafði heyrt svo mikið um hann talað. Alla vega þetta er
svalandi, hressandi bjór með þungt spes bragð og ölþátturinn
er greinilegur.
Það
vantar ekki fyllinguna í þennan gaur og eftirbragð er
meðallangt og ljúft. Lyktin gefur hins vegar litlar
upplýsingar um það sem koma skal. Já ekki eins og ég
vildi hafa þetta! :) |
|