Cobra Extra smooth

   
Brugghús : Charles Wells Ltd.
LAND : Indland
STÍLL : Lager (Premium)
ÁFERÐ : Gylltur
ALKÓHÓL : 5.0%
FYRST SMAKKAÐ : 7/4'01 - Reykjavík
 

ATHUGASEMDIR:  Þetta er fyrsti bjórinn sem ég smakka þetta ár, uss það er nú bara alls ekki nógu góð frammistaða. Nóg um það, Cobra er bara algjör snilld.  Þetta er þrumu góður lager frá Indlandi bruggaður með maís og hrísgrjónum sem gerir skemmtilega blöndu sem laumast að manni í gegnum bragðið. Ferskur, pínu matgóður og ágæt fylling , líklega góður bjór til að kæla bragðlaukana eftir sterkan indverskan mat. Mildur og með hreinum og fullum maltkeim og skilar svo ljúfum eftirkeim sem heldur mani í minningunni um sopann.  Maður getur ekki beðið eftir næsta sopa!
ATH
- Þessi bjór er gjöf frá Kjarra Dodds! Hægt er að smakka þennan fína lager á Austur Indíafélaginu.

 

Einkunn:  Klikkaður bjór!

 

 
 

<< Til baka

Næsti bjór >>