Chimay Rouge
(peres trappistes)

   
Brugghús : Chimay
LAND : Belgía
STÍLL : Belgískur Trappist öl
ÁFERÐ : Dökkbrúnn og þunnur
ALKÓHÓL : 7% (dubbel)
FYRST SMAKKAÐ : 21/8'99 - Reykjavík
 

ATHUGASEMDIR: Hér með hefst saga bjórbókarinnar og er það Chimay rauður sem ríður á vaðið.  Ég réðist nú ekki á garðinn þar sem hann var lægstur með þennan sem upphafsbjór því hér er á ferð hágæða klausturbjór (abbey) frá Belgíu.  Chimay er eitt af 6 bruggfyrirtækjum í heiminum í dag sem má nota TRAPPIST merkið en það þýðir að þessi bjór sé bruggaður af alvöru munkum í alvöru klaustri.  Já þetta er bragðsterkur bjór með mikið malt bæði í nefi og munn.  Biturleika er stillt í hóf en þó nóg til að fríska upp á bjórinn og gæða hann lífi.  Ljúft milt og langt eftirbragð varðveitir minninguna. 7% alk, leynast vel í þessum ágæta öl.
ATH: Fyrsti bjór dagsins og því bragðlaukarnir óspjallaðir og fínir!

 

Einkunn:  Fínn bjór!

Skráðu þitt álit á þessum bjór hér.

Hvað segir almanna rómur um þennan bjór?
------------------------------------
Fleiri frá Chimay:
Chimay Tripel - 4
Chimay Grande Réserve - 4

 
 

<< Til baka

Næsti bjór >>