|
Bjórbók.net
Bjórbókin
kom upphaflega til sögunnar sem eins konar bókhaldskerfi fyrir sjálfan mig
til að auðvelda mér að muna hvaða bjóra ég hafði smakkað og hvort þeir
voru góðir eða vondir. Í bókinni er að finna
einkunnargjöf
fyrir hvern bjór sem og nokkur orð um hvernig ég upplifði bjórinn ásamt
merkimiðanum af flöskunni. Bók þessi er því orðin eins konar
bjórsafn og hefur vakið þó nokkra athygli
þeirra sem komist hafa í hana. Menn hafa hvatt mig til að birta bókina á
einhverjum vettvangi og hef ég því ákveðið að skella henni upp hér á
veraldarvefnum undir nafninu bjórbók.net. Þegar bókin er
skoðuð skal það haft í huga að hér fer einungis fram mat áhugamanns um
bjór en ekki sérfræðings, og svo er bjórmat svo persónulegt að ekkert er
rangt eða rétt þegar komið er að því hvaða bjór þykir góður eða vondur.
Ég vona nú samt að bók þessi verði einhverjum
hvatning til að kanna þá óendanlegu möguleika sem standa manni til boða
þegar bjór er annars vegar, sem og að aðstoða menn við sín fyrstu skref í
bjórsmökkun. Þó svo að enginn geti sagt manni hvað manni þykir gott
þá getur mat annarra samt gangast sem ákveðinn leiðarvísir.
Bjórsmökkun er gríðarlega skemmtileg og
spennandi iðja því maður veit í raun aldrei hvað maður á í vændum í
næstu flösku. Verður það vondur eða góður bjór eða er þar á ferð
hrein fullkomnun? Fyrst um sinn er bara gaman að upplifa
mismunandi góða bjóra en síðar fer maður svo virkilega að finna úr
hvaða hráefnum bjórinn er. Maður fer að greina alls konar
bragðgerðir sem maður tók ekki eftir áður. Þetta er í raun
nákvæmlega eins og með rauðvínið sem menn snobba svo voðalega mikið fyrir
í dag. Rauðvínsspekúlantar geta talið upp heilu
klausurnar af fyrirbærum sem þeir vilja meina að séu til staðar í víninu
og sumir telja sig jafnvel geta sagt til um hvað a
plöntur spretta í nágrenni vínekrunnar.
Það þykir voða flott að vita sínu viti um
rauðvín
og að geta mælt með ákveðinni gerð þrúgu og þess háttar á meðan bjórinn er ekki
eins vel metinn. Í raun er sorglegt hve
mikið bjórinn hefur fallið í skuggann af rauðvíninu og vona ég
svo innilega að menn fari nú að pæla meira í þessum merka drykk og koma
fram við hann af meiri virðingu.
Að setjast niður og slappa af með uppáhalds bjórinn sinn er bara svoooo
ljúft og það gefur rauðvínsglasinu ekkert eftir.
Hafa skal í huga að stöðugt bætast við bjórbókina
nýir bjórar og einnig er síða þessi fjarri því að vera fullgerð. Það
eru því miklar breytingar í gangi og menn verða að kíkja inn við og við
til að sjá hvað er nýtt. Bjór mánaðarins og nýtt í bók eru t.d.
linkar sem ættu stöðugt að uppfærast.
|