Westmalle Dubbel

   
Brugghús : Brouwerij der Trappisten van Westmalle
LAND : Belgía
STÍLL : Belgískur munkabjór
ÁFERÐ : Kastaníubrúnn
ALKÓHÓL : 7.0%
FYRST SMAKKAÐ : 1/1 2003 - Reykjavík
 

ATHUGASEMDIR:  Ahh enn eitt undrið úr smiðju munkanna belgísku, þessir kallar vita greinilega hvað þeir eru að gera þegar að bjórnum kemur.  Kannski er það svo sem ekki skrítið að bjór þeirra sé svona vandaður þar sem þetta var áður það eina sem þeir máttu setja í sig í föstunni, þeir hafa því lagt sig alla fram að gera þetta eins gott og mögulegt er.  Hið mikla alkóhól í þessum munkabjórum er líklega til að kallarnir geta auðveldlega flúið klausturlífið á andlegan hátt.  Dubbel þessi ilmar af sætu malti, eplum og öðrum ávaxtakeim.  Sopinn liggur svo afar vel í munni, silkimjúkur eins og Tripelinn þeirra og með þrusu fyllingu.  Mikill bjór með kaffi, eplum örlitlu sætu malti og gersvepp.  Fjarar svo út með ljúfum eftirkeim.  Alveg prima með sterkum ostum!

 

Einkunn:  Ljúfur sælkeri!

Skráðu þitt álit á þessum bjór hér.

Hvað segir almanna rómur um þennan bjór?

 
 

<< Til baka

Næsti bjór >>