| |
ATHUGASEMDIR:
Ég gæti haft þetta mjög einfalt..."Guð er góður!" en það er
bara svo gaman að tala
um bjór. Upplifunin hefst um leið og bjórinn er kominn í
fallega bikar glasið sitt en þar daðrar hann við bragðlaukana
og kallar tælandi á þá. Sætur ferskur ilmur er af þessum
bjór með sítrónu undirtón! Æ blessuðu munkarnir áttu
hug
minn allan þegar fyrsti sopinn tröllreið bragðlaukunum með
massífu bragði sínu. Hvílíkir snillingar sem þessir
guðsmenn eru. Bjór þessi er heil
máltíð, þykkur og svakalega mjúkur með
malti og beiskum humlum og einhverjum
sítrus blæ í restina. Langt undur
mjúkt eftirbragð með ljúfum mildum
humlum og sítrónu/appelsínu keim sem
heldur manni í heljargreipum fram að næsta sopa. Alkóhólið
segir líka til sín en þó ekki í bragði heldur sem mikill
unaðslegur hiti |
|