Waggle Dance

   
Brugghús : Young & Co. Brewery PLC
LAND : England
STÍLL : Öl
ÁFERÐ : Koparlitaður
ALKÓHÓL : 5..0%
FYRST SMAKKAÐ : 2/10'01 - Reykjavík
 

ATHUGASEMDIR:  Waggle Dance er einn af furðulega mörgum bjórum frá Young en þeir virðast framleiða bjór eins og þeir fái borgað fyrir það : )  Waggle Dance er sá dans kallaður sem Hunangsflugur framkvæma þegar þær benda starfssystrum sínum á hvar hunang er að finna.  Nafnið er svo sem viðeigandi því hér erum við að tala um skemmtilegan öl blandaðan hunangi.  Í nebbaling er þessi bjór mjög sætur og fullur af hunangi ..hvað annað.  Hann er með fínan skrokk og mjúkur í munn  með ögn biturt bragð sem endar í sætu hunangi.  Öl-frúttið er til staðar og hann er ferskur og fínn. Annar bjór sem ég hef smakkað frá Young er Youngs Double Chocolate Stout.

ATH - Framlag Retro í bjórbókina....TAKK FYRIR ÞAÐ RETRO!

 

Einkunn:  

 

 
 

<< Til baka

Næsti bjór >>