W:

A B C D E F G H I J K L M P R S T W Ö

Til baka
 

Weizen/Wheat beer/Witbier (Hveitibjórar, bjórstíll)

Weizen/Wheat beer/Witbier :
Hveitibjór er eins og nafnið bendir til bjór sem bragðast eins og hveiti..............eða hvað?  Nei með hveitibjór er átt við að í stað þess að nota eingöngu maltað bygg til að gefa gerlinum sykrur þá er einnig notað hveiti á móti maltinu sem meðhöndlað er á á kveðin hátt líkt og byggið.  Hveitibjórar eru afar svalandi og mildir og alveg ómótstæðileg hressing á heitum sólríkum degi.   Menn halda oft að hveitibjórar hljóti að vera þungir og matarmiklir sökum þess að í þeim er hveiti og einnig hve gruggugir þeir eru en þetta er samt algjör misskilningur!  Í alla hveitibjóra er notaður ölsveppur á borð við Saccharomyces cerevisiae og eru þeir því öl.

Belgar eru frægir fyrir sinn hveitibjór sem kallast witbier (hvítur bjór) en hann er mildur, hvítur að lit eða ljós og gruggugur og ekki með sterkan mikinn karakter.  Oft er notuð ýmis krydd í bjórinn svo sem coriander, cumin og appelsínubörkur.  Dæmi um belgískan hveitibjór er Hoegaarden.

Þjóðverjar brugga einnig afar góðan og vinsælan hveitibjór sem kallast þar í landi weizen eða weissbier.  Bjór þessi er eins og sá belgíski, fallega ljóshvítur eða gulur og mattur (stafar af gerinu sem er í flöskunni og framkvæmir þar seinni gerjun).  Í bragði og lykt má oft greina blöndu krydds og ávaxta (frútt) á borð við banana, negul og epli.  Þjóðverjar hanna líka afar tignarleg hávaxin glös undir sinn hveitibjór þar sem miðað er að því að taka á móti hinni miklu froðu sem myndast þegar bjórnum er hellt í glas.  Mjög skemmtilegt að drekka úr svona glasi og menn geta prófað það á Kaffibrennslunni ef þeir panta sér Erdinger.   Oft má sjá "Hefe Weisse" á þýskum hveitibjór umbúðum en það þýðir að þetta er bjór með gerinu í (ósíaður bjór).  Sá bjór er náttúrulegri en sá síaði og hann er líka bragðmeiri.  Dæmi um þýskan hveitibjór er Erdinger og  Eichbaum