| |
ATHUGASEMDIR: Pilsner Urquell eða hinn
upprunalegi pilsner
á íslensku er eins og nafnið segir fyrsti pilsner veraldar.
Já þessi gullni pilsner kom fyrst fram á sjónarsviðið árið 1 842
í Pilsen í Bæheimi og varð þá fyrsti ljósi lager sögunnar.
Orðið pilsner
festist svo við bjórinn og hefur svo loðað við allan ljósan
lager æ síðan.
Þetta er nettur
góður bjór, ljúfur og mildur og alls ekki rammur en hefur þó
ljúffenga snarpa humla. Skilar
léttu og fínu eftirbragði. Þennan bjór er
hægt að fá í
ÁTVR á furðulega góðu verði og mæli ég með því að menn prófi
þennan upprunalega pilsner.
ATH: Fyrirmynd hins ljósa lagers í heiminum í dag!
|
|