| |
ATHUGASEMDIR: Jæja þegar þetta er skrifað
þá eru Jólin að nálgast eins og óð fluga og móðir á afmæli í
dag svona ef einhver vildi vita það. Jæja að öðru...
Jólabjór Tuborg í ár, hmmm það er svo sem ekkert nýtt að
frétta af þessum bjór nema þá kannski það að mér finnst hann
lakari nú en í
fyrra. Reyndar er ástæðan líklega sú að mörg
vötn hafa runnið til sjávar og maður telur sig vera orðinn svo
sjóaðan í smakkinu. Í raun er það ölið sem heillar mig
mest og því fær saklaus lager oft að kenna á því sem er í raun
ósanngjarnt. Hins vegar þá er þetta það sem mér finnst
akkúrat núna og ég verð að halda mig við það! Þetta er
samt ágætis þambari og dugar á jammið. |
|