| |
ATHUGASEMDIR: Þetta er svokallaður hrísgrjónabjór, þ.e.a.s. bjór þar sem
hrísgrjón eru
notuð ásamt byggi og hinum hefðbundnu hráefnum.
Austurlenskir bjórar eru oft bruggaðir með hrísgrjónum en
grjónin eiga að gefa bjórnum fína fyllingu. Ég reyndar
man ekki alveg hvernig þessi bjór var (skrifaði dóminn ekki á
staðnum) sem þýðir líklega að hann hafi ekki verið voðalega
eftirminnilegur : ) Man samt að þessi bjór hentaði afar
vel með kínverskum og tælenskum mat.
ATH - Þessi var fáanlegur hér á landi um tíma. Veit
ekki hver staðan er í dag samt. |
|