| |
ATHUGASEMDIR:
Ja enn eru þeir hjá Agli að koma með nýtt og
skemmtilegt framlag í bjórmenningu landsins. Þorrabjór!
líklega sá fyrsti og eini sinnar tegundar á jörðinni eða hvað?
Hingað til hefur bjórinn frá Agli ekki heillað
mig persónulega og ég hef forðast hann sem heitan eldinn en jólabjórinn
þeirra var snilld þannig að ég bara varð að prófa þennan enda
þorramánuður ekki satt? Já þetta er sem sagt bústaðarbjórinn að
þessu sinni. Þetta er svona líka ljúfur og fínn
kall, bragðmikill og með fína þétta fyllingu og svo vel
sprellandi humla. Þorri er samt gjörsamlega laus við að
vera rammur eða of þurr. Ég get svo svarið það að ég er
að finna, auk humla, pínu HUNANG í nefi? Mjög spes.
Þetta er sem sagt klassa lager sem hentar vel með flestum mat,
mætti þó vera rammari til passa með þessum viðbjóði sem við
köllum þorramat, svona til að frelsa bragðlaukana frá úldmetinu. Eins er þetta frábær "stand alone gaur"! Fínn með súru
hænulegi!!!!! |
|