Super Bock

   
Brugghús : Uniao Cervejeira (Unicer)
LAND : Portúgal
STÍLL : Bock
ÁFERÐ : Gylltur
ALKÓHÓL : 5.8 %
FYRST SMAKKAÐ : 11/9'99 - Reykjavík
 

ATHUGASEMDIR:  Þessi "sterki" lager er framlag þeirra Portúgala til heimsins en þessi bjór tilheyrir líklega hinum sterku Bock lagerum eins og nafnið bendir til. Reyndar eru Bock bjórar töluvert sterkari en þessi og þá aðallega þeir þýsku en hins vegar eru til Bock bjórar frá öðrum löndum sem eru með lægra alkóhólinnihald.  Þetta er mjög góður bjór og alls ekki rammur og með góða fyllingu.  Maltið er vel merkjanlegt og bjórinn er ferskur og fínn. 
ATH -  Ég smakkaði þennan bjór fyrst heima í Reykjavík og gaf honum þá 3 krúsir, svo var ég staddur í Portugal þann 20/4'00 og smakkaði hann aftur.  Ég kunni greinilega betur að meta hann þá og gaf honum þessar 4 krúsir. 

 

Einkunn:  Ummmmm!

 

 
 

<< Til baka

Næsti bjór >>