-
 

St. Feuillien
Cuvée de Noél

   
Brugghús : Brasserie St-Feuillien / Friart
LAND : Belgía
STÍLL : Belgískt sterk öl
ÁFERÐ : Svartur með rauðum blæ
ALKÓHÓL : 9,0%
FYRST SMAKKAÐ : 28.12.2002 - Reykjavík
 

ATHUGASEMDIR:   Þetta er bjór sem ég hafði geymt í hálft ár til að drekka yfir jólin.  Eftirvæntingin var því orðin ansi mikil.  Í nefi má finna sterka lykt með eplum og ávextum og ögn möndlum.  Í munni er þetta mikill massi með sterkt bragð og mikla fyllingu.  Þetta er ljúfur mjúkur kall með "brúnu" bragði ef maður getur sagt svo og pínu sætur keimur.  Fyrst þegar ég smakkaði þennan bjór varð ég fyrir miklum vonbrigðum en svo smakkaði ég hann aftur á RisRas okt 2003 og þá var sko aldeilis annað uppá teningnum.  Þetta er einfaldlega frábært eintak frá Belgíu og jólin eru alveg gulltryggð með þennan við hönd.  Þetta er 9% bjór en alkóhólið kemur furðu lítið fram í bragði en maður upplifir það þó í öllum líkamanum sem hita.  Smellpassar fyrir svefninn eftir hamagang aðfangadagskvölds!

 

Einkunn:  Snilld!


 

 
 

<< Til baka

Næsti bjór >>