| |
ATHUGASEMDIR: Svo virðist sem heimurinn
hafi komið vel út úr þessum "aldamótum" og allt er eins og það
á að vera! Fyrsti bjó r þessa árs er Stella Artois sem er mjög
góður belgískur lager. Árstíminn er svo sem viðeigandi
fyrir þennan bjór því upphaflega var Stella aðeins bruggaður og
seldur sem jólabjór (stella þýðir stjarna) en þessi
jólabjór varð svo vinsæll að tekið var að selja hann allt árið
um kring. Þetta er léttur, mildur lager og með góða
seiðandi angan. Ögn humalkeimur merkjanlegur en það lífgar upp
á bjórinn án þess þó að hann sé of rammur.
Eitt sem er duló við miðann á þessum bjór er setningin "Belgium's
original beer" en það er auðvitað vitað mál að hið belgíska öl
kom fram á sjónarsviðið langt á undan öllum lager. |
|