Samuel Smith's
Outmeal Stout

   
Brugghús : Samuel Smith Old Brewery
LAND : England
STÍLL : Stát (stout)
ÁFERÐ : Svartur og mattur
ALKÓHÓL : 5 %
FYRST SMAKKAÐ : 21/8'99 í afmæli hjá Bjögga
 

ATHUGASEMDIR:  Þessi kemur úr röðum hinna frægu ensku státa sem þýðir að hann sé svartur og vel maltaður.  Eins og nafnið bendir til þá er þessi gaur bruggaður með aðstoð hafra í stað byggs eins og oftast er venjan.  Lyktin af þessum er sæt og maltkennd og eins og við var að búast þá er "dökkt" bragð af honum ef svo má að orði komast.  Skilur eftir sig sérkennilegt og gott eftirbragð. Ljúfur og mildur bjór, mjög gott ropbragð (kemur við ropun).  Oft eru státar frekar þungir og örlítið rammir en þessi fíni bjór er ögn sætur og afar ljúffengur.

ATH: Þriðji bjór kvöldsins og drukkinn strax eftir grillmat - gæti mengað dóminn!

 

Einkunn:  Nammi namm!

 
 

<< Til baka

Næsti bjór >>