Samichlaus Bier

   
Brugghús : Castle Eggenberg
LAND : Austuríki
STÍLL : Dobbelbock
ÁFERÐ : Vínrauður
ALKÓHÓL : 14,0%
FYRST SMAKKAÐ : 14.11.2003 - Århus
 

ATHUGASEMDIR:   Úfff, það er óhætt að segja að hér sé á ferð einn dulafyllsti bjór veraldar og reyndar er þetta einnig einn sá sjaldgæfasti.  þetta er LAGER en þó er fátt sem minnir á lager.  Samichlaus er jólabjórinn frá Castle Eggenberg og fæst aðeins í kringum jólin.  Þetta er bjór sem eldist vel og verður mýkri og frúttaðari með árunum og það má geyma hann í allt að 10 ár, eiginleiki sem ég hef aldrei séð í lager fyrr.  Bjór þessi er svo 14.0 % í alkóhóli og er það einfaldlega sterkasti bjór sem ég hef heyrt um og er afar óvanalegt með lager.  Þeir hjá Eggenberg segja sjálfir að þetta sé STERKASTI BJÓR Í HEIMI.  Í nefi má finna ávexti og létt berjaðan keim eða  brennt cherry!  Í munni er bjórinn rosalegur, bragðmikill,sterkur og ótrúlega mjúkur.  Reyndar allt allt of mikill bjór fyrir mína lauka en ég er viss um að það eru menn þarna úti sem geta "downað" þessum með leik.  Ég gat hins vegar ekki klárað þennan.  Í bragði eru ber, humlar, þungt maltið og vín eða alkóhól.

 

Einkunn:  Of mikill massi!


 

 
 

<< Til baka

Næsti bjór >>