| |
ATHUGASEMDIR: Þetta framtak þeirra Samuel
Smith manna jaðrar bara við það að vera hollt. : ) Já
þetta er einn af hinum hamingjusömu bjórum eins og Sigrún Þ
myndi segja, þ.e.a.s hann er lífrænt ræktaður! Með
lífrænt ræktaður þá erum við að tala um að öll hráefni í
bjórinn eru ræktuð með þeim hætti sem kallast lífræn ræktun.
Enginn óþveri þar á ferð eða hvað? : )
Annars er þetta frekar líflaus bjór þótt lífrænn sé (hehe),
lítil lykt og vottar fyrir málmi eða ryði? Afar léttur
og mildur og frekar bragðlítill með litla fyllingu. Alls
ekkert til að orga húrra fyrir en samt er eitthvað svo gott
til þess að vita að maður er að drekka ósnortið
náttúrubarn......maður fyllist einhvern veginn góðri
öryggiskennd. Ég mun samt ekki klífa fjöll til að smakka
þennan aftur!
Mæli frekar með
Oatmeal Stout
frá þessu sama brugghúsi! |
|