S:

A B C D E F G H I J K L M P R S T W Ö

Til baka
 

Saison (árstíðar bjór) - Saccharomyces carlsbergenis - Saccharomyces uvarum - Saccharomyces cerevisiae - Sveppaður - Stát (Stout, bjórstíll)

Saison (árstíðar bjór) :
Saison (árstíðar bjór) er belgískur bjórstíll eða sumar öl sem ættaður er frá frönsku mælandi suðurhluta Belgíu. Bjór þessi var venjulega bruggaður á veturna eða vorin og svo geymdur fram á sumar og drukkinn yfir sumarmánuðina.
Saison bjórar þurftu að vera  frekar humlaðir til að haldast ferskir yfir sumarið en þó ekki of rammir svo þeir væru svalandi á heitum sumardegi.    Þessir bjórar eru líka þekktir fyrir að vera afar gosmiklir en gosið safnast fyrir í flöskunni yfir geymslutímann. Oft er svo ýmsum kryddum eða jurtum bætt við til að lífga bjórinn aðeins við.  Nú á tímum er afar fá brugghús sem brugga þessa bjór perlu og má segja að stíll þessi sé að deyja út.

Saccharomyces carlsbergenis :
Gersveppur sem notaður er við lagergerjun.  Sveppurinn er botngerjari sem þýðir að hann leitar niður að botni gerjunartanks við gerjun. Hann kann best við sig við lágt hitastig.

Saccharomyces uvarum :
Gersveppur sem notaður er við lagergerjun.  Sveppurinn er botngerjari sem þýðir að hann leitar niður að botni gerjunartanks við gerjun. Hann kann best við sig við lágt hitastig.

Saccharomyces cerevisiae :
Gersveppur sem notaður er við ölgerjun.  Sveppurinn er toppgerjari sem þýðir að hann leitar upp að yfirborði gerjunartanks við gerjun. Hann kann best við sig við hátt hitastig og við gerjun gefur hann frá sér estera sem eru svo einkennandi fyrir ölið.

Stát (Stout) :
Þessi afkomandi portara er oftast svart eða dökkbrúnt öl sem inniheldur hátt hlutfall ristaðs korns.  Státar eru oft sætir og mjög maltaðir en einnig eru þeir oft rammir og þurrir.  Þetta eru mjúkir bjórar, stundum mjólkurkenndir og oftast með fína mjúka froðu.  Algengt er að finna reykt bragð, kaffi og stundum súkkulaði.

Dæmi um sætan stát er Samuel Smith's Outmeal Stout.

Dæmi um þurran stát er Guinness og Murphy's Irish Stout

Sveppaður :
Orðatiltæki sem ég nota persónulega yfir það þegar ég finn bragð af gersveppnum í bjórnum.  Oft er þetta svona "frúttað" bragð en samt ekki eins og ávextir.  Þetta bragð er aðeins af ölinu en ekki lager. Gæti verið pínu súrt en samt sætt svona gerbragð???