| |
ATHUGASEMDIR:
Mikið eru þessir munkar dæmalaust
yndislegir!
Hér færa þeir okkur þennan fína sælkera. Popp! tappinn
af og svo er helt í bikarinn sem Rochefort unir sér best í,
fallega brúnn drykkurinn bíður eftir manni með þétta og mjúka
froðu á toppnum. Sætur unaðs keimur stígur upp úr glasinu með
sætum eplum (rauð?) og öðrum ávöxtum. Pínu alkóhól þegar
líður á drykkinn. Þessi bjór er svo mjúkur og
rjómakenndur
í munn að hann þekur góminn eins og mjúkt teppi. Þetta
er flókinn og mikill bjór sem tekur vel á laukunum og er góður
munnfyllir. Ferskur og vel spriklandi og pínu bitur í
endann og með kaffi alveg í blárestina. Þegar líður á glasið
tekur alkóhólið að koma í gegn. ATH þennan bjór má geyma í
nokkur ár og hann breytist mjög eftir sem á líður. |
|