Red Erik

   
Brugghús : Ceres
LAND : Danmörk
STÍLL : Rauður lager
ÁFERÐ : Rauður og tær
ALKÓHÓL : 6.5 %
FYRST SMAKKAÐ : 4/5'02 RVK
 

ATHUGASEMDIR: Þetta er fallegur bjór, eldrauður og tær og minnir helst á saft!  Upp úr glasinu stígur ferskur, sætur og pínu pínu ávaxta ilmur gott ef ekki örlar á hunangi eða kandís. Ég verð að viðurkenna að þegar ég verslaði þennan þá var ég nú ekki að búast við neinu sérstöku...fannst hann pínu fráhrindandi en hann kom skemmtilega á óvart.  Reyndar er akkúrat engin froða í þessum gaur en það er nú ekki aðal atriðið.  Eiríkur Rauði bragðast eiginlega alls ekki eins og venjulegur lager, í raun má segja að hann sé "rauður" á bragðið ef það meikar einhvern sense?  Örlítið sætur og humlar rétt aðeins merkjanlegir. Eitthvað annað bragð sem ég get ekki alveg komist niður á en gæti verið ber einhvers konar?

 

Einkunn:  Ferskur, sætur og mildur

Skráðu þitt álit á þessum bjór hér.

Hvað segir almanna rómur um þennan bjór?

 
 

<< Til baka

Næsti bjór >>