Quidi Vidi KRIEK

   
Brugghús : Quidi Vidi Brewing Company
LAND : Nýfundnaland
STÍLL : Kriek (kirsuberjabjór)
ÁFERÐ : Ljós / Amber
ALKÓHÓL : 5.0%
FYRST SMAKKAÐ : 19/9'01 - Reykjavík
 

ATHUGASEMDIR:  Hér er á ferð bjórstíll sem uppruninn er frá Belgíu.  Þetta er ávaxtabjór sem gerður er með því að blanda saman kirsuberjamassa við lambic eða gueuze og stundum brún öli (Oud Bruin).  Lambic er ævaforn bjórstíll og líklega sá elsti sem menn geta komist yfir í dag.  Þó svo að þessi bjór heiti kriek (kirsuber á flæmsku) þá er þetta auðvitað bara eftirherma og fjarri því að vera eins og hinir ekta belgísku kriek bjórar eins og t.d. Liefmans kriek eða Cantillon kirek ofl.  Engu að síður er þetta eini kriek bjórinn sem fæst hér á landi og hann er bara ágætur.  Sannarlega vert að prófa hann.   Kirsuberin eru ríkjandi í lyktinni og yfirgnæfa allt annað, fín fylling í munni og áberandi, ríkt kirsuberjabragð.  Gosmikill og hyper frískandi með frekar skammlífan endi.

 

Einkunn: Ómægod.. þrumu ferskur og fínn!

Skráðu þitt álit á þessum bjór hér.

Hvað segir almanna rómur um þennan bjór?

 
 

<< Til baka

Næsti bjór >>