Poperings Hommelbier

   
Brugghús : Van Eecke
LAND : Belgía
STÍLL : Belgískt sterköl
ÁFERÐ : Mattur, karamellubrúnn
ALKÓHÓL : 7,5%
FYRST SMAKKAÐ : 29.08.2003 - Århus
 

ATHUGASEMDIR Hommel bier er ekki fyrsti bjórinn sem ég smakka frá Van Eecke því áður hef ég landað Het Kapittel Pater og Het Kapittel Dubbel sem báðir eru afar góðir klausturbjórar. Hins vegar er þetta bjórinn sem Van Eecke er þekktast fyrir.  Bjór þessi er öl sem er afar bragðmikið með áberandi massífum humlum sem eru ögn þurrir en ekki of bitrir. Þetta mikla humalbragð er einkennandi fyrir bjórinn en nafnið Hommel þýðir humall og bendir nafnið auðvitað á hina miklu humla sem eru Goldings og Hallertau af fínustu sort ræktaðir í Poperings.  Humlarnir gera öl þetta ansi líflegt en auk þeirra má greina örlitla sítrónu og kryddaðan karakter.  Sopanum líkur svo með ómótstæðilegum eftirkeim sem varir lengi.

 

Einkunn:  Beittur og hressandi!

Fleiri frá Van Eecke:

Het Kapittel  Pater - 4.5

Het Kapittel Dubbel - 4.5

 
 

<< Til baka

Næsti bjór >>