| |
ATHUGASEMDIR: Þetta
er alveg ljómandi gott öl frá Van den Bossche sem stofnsett
var 1897. Pater sem þýðir faðir á að tengja bjórinn við
munka eða klaustur en brugghúsið er samt sem áður alls ótengt
nokkru klaustri. Pater Lieven Blond er einn af nokkrum
frá þessu ágæta brugghúsi. Þetta er fínn bjór, mildur og
léttur í munn en með fínt ljúft bragð. Í nefi eru sætir
humlar og matmikið malt áberandi en í munni erum við að tala
um humla og létta ávexti. Þegar líður á bjórinn kemur
ögn alkóhól inn og smá salt í restina.
Sem sagt fínn bjór sem óhætt er að þræla í sig en menn skulu
ekkert vera að kífa fjöll til að nálgast hann.!
Bjór þessi var framlag
SigJó..TAKK FYRIR ÞAÐ? |
|