Orval

   
Brugghús : Brasserie d'Orval
LAND : Belgía
STÍLL : Munkaöl/Trappist
ÁFERÐ : Karamellulitaður
ALKÓHÓL : 5.0 %
FYRST SMAKKAÐ : 12.07.2002 - London
 

ATHUGASEMDIRAllir sem eitthvað hafa spáð í bjór hafa heyrt talað um Orval munkabjórinn. Orval dregur nafn sitt af Vallée d'Or sem þýðir gulldalurinn.  Sögur segja að í denn hafi Greifynja tapað gullhring sínum í vatni nokkru í dalnum og að hún hafi heitið því að láta reisa þarna Munkaklaustur ef  hringur hennar findist.  Þá birtist silungur í vatninu með hringinn í munninum.  Kella stóð við loforð sitt og lét reisa klaustur. Silunginn má enn sjá á merkimiða bjórsins.  Öl þetta er ómótstæðilegt í sínu gullfallega glasi.  Í lykt er ferskur sítrónu-mysukeimur ríkjandi og minnir um margt á freyðivín.  Ölið er svo nokkuð þurrt í munn en ekki of rammt.  Gosríkt með sítruskeim eða eitthvað sem gæti verið mysuostur.  Ölið er svo ekki frúttað eins og hinir munkabjórarnir.  Allt umtalið um þennan bjór varð samt til þess að væntingar mínar voru of miklar :(

 

Einkunn:  Þurrt öl!

Skráðu þitt álit á þessum bjór hér.

Hvað segir almanna rómur um þennan bjór?

 
 

<< Til baka

Næsti bjór >>