Newcastle Brown
Ale

   
Brugghús : Scottish Courage
LAND : England
STÍLL : Brúnt öl
ÁFERÐ : Rauðbrúnn
ALKÓHÓL : 5.0%
FYRST SMAKKAÐ : 15/1'00 - Reykjavík
 

ATHUGASEMDIR:  Þessi kall er ekta enskur brún öl sem Englendingar eru vel þekktir fyrir.  Ölið í Englandi er hins vegar töluvert öðruvísi en t.d. belgíska ölið og að mínu mati mun verra.  Hins vegar eru Englendingar heimsfrægir fyrir hágæða öl og því er ekki ólíklegt að einhverjir séu ósammála mér um t.d. þennan dóm hér.  Þessi kall er að mínu mati frekar slakur bjór og ég gjörsamlega get ekki skilið þá athygli sem hann fær frá öðrum smökkurum.  Svona er nú það bara!  Newcastle brown ale er stundum kallaður hundurinn af heimamönnum en enginn veit í raun hvaðan það nafn er komið.  Hins vegar nota menn þetta óspart og segjast ætla að skreppa út að viðra hundinn.  Ég segi hins vegar fargið helvítis hundinum !
 

 

Einkunn:  Hundslappur!

 

 
 

<< Til baka

Næsti bjór >>