Murphy's Irish Stout

   
Brugghús : Murphy Brewery
LAND : Írland
STÍLL : Írskur þurr STÁT
ÁFERÐ : Svartur og mattur
ALKÓHÓL : 4.0 %
FYRST SMAKKAÐ : 3/5'02 RVK
 

ATHUGASEMDIR:  Jæja, ég veit að ég var að taka áhættu með að velja mér bjór frá Murphy's, hef ekki góða reynslu af þeim eins og sjá má hér.  En engu að síður ákvað ég að gefa þeim séns því mig langaði að prófa írskan STÁT.  Þetta byrjaði vel, flaskan leit vel út og með voða fancy system sem á að skapa kranafílinginn og svo var hann mjög nettur í glasi.  Kolsvartur og með rjómakenndri ljósljós brúnni þéttri froðu en þegar maður andar honum að sér taka vonbrigðin við!  Ég veit ekki hvort þið trúið því en það er einhvers konar reykingarlykt í bland við járn af þessum gaur??? Svona pínu eins og fötin manns eftir jammið OJ!  Bragðið er líka einhvern vegin reykt og vont. Ekkert sætt malt eins og maður gæti búist við af svona bjór og hann var líka frekar goslaus.  Hvað eru þeir að gera þarna hjá Murphy's?

 

Einkunn:  Varúð vondur!

 
 

<< Til baka

Næsti bjór >>