|
ATHUGASEMDIR: Lítil sem engin lykt að þessum
kalli og ekkert malt bragð en hins vegar kemur eitthvað
dularfullt en dauft málmbragð í gegnum annars fábrotið
bragðið. Minnir um margt á ölkelduvatn líkt því sem fæst
á Snæfellsnesi (alls ekki meðmæli með bjór) ja eða ryðgað
járn? Undarlegt, hvaðan fá þeir vatnið í þennan?
Lítið eftirbragð sem betur fer því maður vill helst losna við
þennan gaur sem fyrst af bragðlaukunum. Svo er þessi bjór líka
flatur!
ATH: Annar bjór kvöldsins!
|