|
ATHUGASEMDIR: Hér erum við með öl frá
Moosehead en áður hef ég
smakkað lagerinn þeirra
Moosehead Beer sem er
andskoti nettur lager! Moosehead Pale ale er eins og
nafnið bendir til svo kallaður
föl öl sem er líklegast sá öl
sem kemst næst því að vera lager. Ef menn vilja bera
saman lager og öl þá er ekki vitlaust að prófa þessa tvo frá
Moosehead og athuga hvar munurinn liggur. Pale ale er
með þennan humlaða og svo frúttaða fíling í lyktinni sem
einkennir öl-bjóra...líklega er hér um að ræða estera frá
ölsveppnum. Mjög frískur í nefi! Á tungu er þetta
hins vegar lítið verkefni fyrir spennta lauka en frúttið er
til staðar í einhverju mæli. Grannur bjór með lítið
eftirbragð og skilur bara ekkert eftir sig.
Get í raun ekki mælt með þessum sem ekta öl en þó er þetta
fínt fyrir byrjendur í ölinu! |