Modelo Especial

   
Brugghús : Grupo Modelo (Corona)
LAND : Mexíkó
STÍLL : Lager
ÁFERÐ : Ljósgulur
ALKÓHÓL : 6.0%
FYRST SMAKKAÐ : 1/1'00 - Reykjavík
 

ATHUGASEMDIR:  Bjórinn sem sniðinn er fyrir hinn almenna Íslending!  Já þetta er þrusu þambari og það fer ekkert fyrir honum.  Þetta er einn af þessum bjórum sem ég kalla alkóhólferjur, því þeir eru háir í vínanda og svo mildir og bragðlitlir að maður þarf ekkert að hafa fyrir þeim.  Skila vínandanum bara beint upp í haus án þess að eiga of mikið við bragðlaukana.   Þó svo að þessi sé sniðinn fyrir hinn íslenska jammara þá er þetta engin snilldar smíð og vonlaus kósíbjór.  Ég gef þessum þó góða einkunn bara fyrir það að vera svona mildur en samt 6.0%.

Ég mæli því með þessum fyrir jammarann sem ekki fílar bjór : )
 

 

Einkunn:  Fín alkóhólferja!

 

 

<< Til baka

Næsti bjór >>