M:

A B C D E F G H I J K L M P R S T W Ö

Til baka
 

Malt - Maltaður - Möltun - Mars bjór (Marzenbier) - Munchen bjór (Munchner)

Malt :
Malt er eitt af hinum 4 hráefnum bjórs en maltið er í raun bygg sem hefur verið meðhöndlað með aðferð sem kallast "möltun" en við möltun er sterkja í bygginu brotin niður í nýtanlegar sykrur.  Malt eða maltað bygg er nauðsynlegt fyrir gersveppinn því þaðan fær sveppurinn sykrurnar sem hann notar í gerjuninni til að búa til vínanda. Við möltun þá er byggið látið safna í sig raka og svo spíra og loks er það þurrkað eftir ýmsum aðferðum eftir því hvaða áferð það á að fá. Þurrkun og hitastigi er stillt eftir því hvort sóttst er eftir dökkum eða ljósum bjór eða þar á milli.   Maltið hefur mikið að segja um það hvernig bjór verður úr brugguninni, gerð maltsins (afbrigðið), spírunartími og þurrkunar hitastig eru allt þættir sem skipta hér miklu máli.  ATH - sumir telja sig vera að drekka "maltbjór" þegar þeir eru með svarta eða dökka bjóra en það er alls ekki rétt.  Reyndar er það rétt með tilliti til þess að allir bjórar eru maltbjórar líka hinir ljósu lager bjórar! Liturinn ræðst einfaldlega af því hversu brennt/þurrkað maltið er sem notað er í bjórinn.

Maltaður :
Þetta er orðatiltæki sem ég nota persónulega til að lýsa bragði eða lykt bjórs.  Með maltaður þá á ég einfaldlega við að bjórinn er pínu sætur og maltið er áberandi.

Möltun :
Möltun er það ferli kallað þegar byggið er dreift á gólf og látið sjúga í sig raka og spíra.   Við það brjóta ensím í bygginu niður hluta af sterkjunni (fjölsykra) þannig að einfaldar einsykrur myndast.  Úr möltun verður til svo kallað "grænt malt" sem enn á eftir að fullvinna fyrir bruggunina.

Marzenbier - Mars bjór :
Þýskur hátíðarbjór sem vinsæll er á hinum fræga októberfest í Þýskalandi. Þetta er mjúkur, maltaður koparlitaður lager sem bruggaður er í mars og látinn eldast fram í septemberlok eða byrjun október.  Þýskir og tékkneskir humlar í mjög góðu jafnvægi.

Munchener :
Þessi dökki  lager er sá lager sem fyrst kom til sögunnar og markaði upphafið að algjörlega nýrri bjórfjölskyldu.  Dunkelinn fæddist í Spaten-brugghúsinu í Munchen í Þýskalandi um miðja 19. öld og vakti strax heimsathygli.  Bjórinn er nokkuð maltaður bæði hvað varðar bragð og lykt en samt í góðu jafnvægi með þýskum humlum.  Lítið rammur og léttur bjór.