La Trappe Dubbel

   
Brugghús : Koningshoeven
LAND : Holland
STÍLL : Klausturbjór
ÁFERÐ : Dökk- rauðbrúnn
ALKÓHÓL : 6.5%
FYRST SMAKKAÐ : 19/7´02 - London
 

ATHUGASEMDIR:   Þegar ég smakkaði þennan fyrst þá taldi ég mig vera að smakka ósvikinn Trappist en síðar komst ég að því að Koningshoeven seldi bjór sinn í kringum 1998 - 9.  Þetta er því aðeins klausturbjór í dag.  Burt séð frá því þá er þetta hinn fínasti bjór með notalegu malti og frútti sem gælir við nefið ásamt ögn bananakeim.  Í munni eru humlarnir ekki áberandi en ölið er sætt, mjúkt og kitlandi og gælir við tunguna.  Í lokinn er fínn langvarandi endir með kaffisnefil og gulum epplum. 
Já þette er hinn fínasti bjór og er óhætt að mæla með honum þó svo að þetta sé ekki lengur ekta munkur : )

 

Einkunn:  Þéttur og góður!


 

 
 

<< Til baka

Næsti bjór >>