La Chouffe

   
Brugghús : Brasserie dAchouffe
LAND : Belgía
STÍLL : Belgískt sterk öl
ÁFERÐ : Ljós karamellu brúnn
ALKÓHÓL : 8,0%
FYRST SMAKKAÐ : okt 2003 - Århus
 

ATHUGASEMDIR:   Ummm þessi litli sæti jólasveinn er farinn að vera einn af mínum uppáhalds fígúrum.  Í hvert sinn sem ég sé þennan kall fæ ég vatn í munninn og minnist þess hve óskaplega góður bjór LaChouffe er.  Ætla mætti að hér sé jólabjór á ferð en í raun fæst þessi bjór allan ársins hring.  La Chouffe á sér langan frægðarferil sem að mínu mati er ekki aðal atriðið.  Það er jú okkar persónulega mat sem gildir.  Bjórinn ræðst á mann með þéttpökkuðum ljúfum ylm af ýmsum toga, sætur, mildur og frúttaður.  Í munni er hann svo vel fullur, mjúkur og braðgmikill og minnir pínu pínu á Chimay Tripel nema er betri en sá ágæti drykkur.  Alkóhólið er vel maskað og eftirbragð er tóm hamingja !

 

Einkunn:  Óskaplega góður!


 

 
 

<< Til baka

Næsti bjór >>