L:

A B C D E F G H I J K L M P R S T W Ö

Til baka
 

Lager (bjórfjölskylda) - Lambick (bjórstíll)

Lager :
Í lager er notaður svo kallaður Saccharomyces uvarum gersveppur sem kann best við sig í lægra hitastigi og leitar niður að botni í gerjunartanknum á meðan á gerjun stendur.   Bruggun lagers tekur oftast mun lengri tíma en öl bruggun, enda er notað lægra hitastig.  Einkenni lager bjóra er mikill tærleiki, þeir eru snarpir, elegant og ferskir og að mínu mati mun einfaldari að gerð og yfir höfuð frekar einsleitir. Engu að síður eru að finna margar gerðir lagers og þá sérstaklega í Þýskalandi en Þjóðverjar eru snillingar í bruggun lagers.  Reyndar fæddist fyrsti lagerinn í Spaten-brugghúsinu í Munchen í Þýskalandi um miðja 19. öld og var þá dökkur.  Þessi dökki lager varð fljótlega afar vinsæll og kærkomin tilbreyting frá ölinu í þá daga. Ljósi lagerinn sem síðar kom bætti svo en betur og varð fljótlega vinsælasti bjórstíll veraldar og er enn í dag.

Lambick :
Þetta er elsti bjórstíll veraldar og er sá bjórstíll sem kemst næst hinum forna upprunalega bjór.  Lambic er belgískur hveitibjór sem gerjaður er með villtu geri og örverum úr andrúmsloftinu. Gerjunin fer fram í stórum eikartunnum sem geymdar eru í drungalegum köldum kjöllurum.  Lambic verður að innihalda lágmark 30% hveiti til að kallast ekta og er hveitið venjulega ómaltað.  Bjórinn er gruggugur, gulur, létt humlaður, froðukenndur og örlítið súr .  Lambic er svo oft bragðbættur með ýmsum ávöxtum svo sem ferskjum (peche), kirsuberjum (kriek) og hindberjum (framboise).  Vilji maður fá fortíð í flösku þá verður maður að smakka þennan.  Gueuze og Faro eru svo enn aðrir Lambick bjórar en Gueuze  er í raun bara blanda af gömlum og ungum Lambick bjór. Faro er svo sá allra sjaldgæfasti og er nánast í útrýmingarhættu og fæst aðeins í Belgíu.