| |
ATHUGASEMDIR:
Kwak er mjög sérstakur belgískur bjór sem erfitt er að flokka
eftir stíl. Hann er dreginn í sama dilk og belgísk sterk
öl en í raun á hann sér enga hliðstæðu. Bjórinn er
nefndur eftir Pauwel Kwak sem fyrstur bruggaði hann árið 1791
en sumir vilja meina að nafnið sé til komið vegna þess að það
heyrist
"kwak" þegar maður þambar bjórinn úr sínu afar sérstaka glasi
- skemmtileg pæling en þó ekki rétt. Glasið var hannað á
sínum tíma fyrir ökumenn hestvagna þannig að þeir gætu notið
bjórsins án þess að fara úr vagninum. Tréstatífið í dag
minnir á höldurnar á vögnunum sem héldu á bjórnum.
Bjór þessi ilmar afar vel með bönunum, sætu malti og kandís. Í
munn er hann sæmilega fullur með malti, brenndan sykur eða
karamellu og ögn frúttaður. Eftirbragðið er afar gott og
að mínu mati betra en sjálft bragðið. Þetta er mikill
bjór og öflugt alkóhólið hitar mann allan upp. Þennan
drekkur maður bara í rólegheitum einn til tvo en fleiri er vís
bani. Þó hér sé afar frægur og vel metinn bjór frá
Belgíu þá bara get ég ekki gefið honum neina svaka einkunn. Ég
er bara ekki að fíla hann. Þetta er þó bjór sem maður
VERÐUR að prófa og þá auðvitað í sínu rétta glasi.
|
|