Kronenbourg

   
Brugghús : Brasseries-Kronenbourg
LAND : Frakkland
STÍLL : Lager
ÁFERÐ : Gylltur
ALKÓHÓL : 4.5%
FYRST SMAKKAÐ : 15/8'01 - Reykjavík
 

ATHUGASEMDIR:  Hér er loksins komið að því eftir allan þennan tíma að ég gefi hæstu einkunn fyrir lager.  Þetta er snilldar bjór sem hittir beint í mark!  Til að byrja með er það flaskan en hún er afar formfögur, minnir pínu á kvenmannslíkama og fer vel í hendi.  Miðinn er látlaus þar sem ekki er verið að slá ryki í augu neytandans... innihaldið er bara látið tala sínu máli! Þessi ljúfi lager ilmar svo eins og engill, frískandi humlar og pínu sætur maltkeimur kemur munnvatni af stað mmmmmmm!  Í munni liggur sopinn vel og bjórinn bókstaflega gælir við bragðlaukana.  Humallinn kemur ferskur inn og lífgar upp á bjórinn en maltið kemur í fínu jafnvægi inn og hindrar að bjórinn sé of rammur.  Fín fylling og svo akkúrat hæfilegur skammtur af kolsýru sem rífur léttilega í.  Frábært langvarandi eftirbragð sem maður tímir varla að skemma með næsta sopa!

 

Einkunn:  Óaðfinnanleg snilld!

 

 
 

<< Til baka

Næsti bjór >>