|
ATHUGASEMDIR: OK þetta er Kronenborug 1664
sem menn ættu ekki að rugla
saman við
bara
Kronenbourg því það er
ekki alveg sami bjórinn. Engu að síður er þetta fjandi
góður franskur lager sem gefur þrusu eftirbragð. Þetta
er létt, milt og léttskrokka kvikindi sem maður hefur
ekkert fyrir að skola niður. Með betri
lagerum sem ég hef smakkað hingað til verð ég að segja?
Margir eru sjálfsagt ósammála mér en svona er nú það.
ATH - Þessi bjór var í boði Dodda og Lóu frá
Frakklandi. Nú fæst þessi bjór hins vegar hér í
ÁTVR. |